skemmtilegheit dagsinsKristín Birta Jónsdóttir
fólust í því að kíkja á stjörnuspána og sjá eftirfarandiBrosið þitt er svo heillandi. Þú færð mestu fílupúka til að linast upp. En passaðu þig samt hverja þú heillar upp úr skónum.....
Algjörlega story of my life þetta...brosi eins og kjáni og heilla ekkert nema kjánaprik uppúr skónum ;)
það helsta í fréttum er annars bara það að Viktor er fluttur út - Þórey er flutt inn - ég er hætt að vinna í Þrastalundi - byrjuð að vinna á Krús og er bara hress í bili
blogg u later :*
viðburðaríka lífið mitt...Kristín Birta Jónsdóttir
Helgin var góð og margt að gerast...vikan var einnig viðburðarík og mikið að frétta af Selfossbeyglunni í þetta skiptið. Þar sem ég er þó að vinna í augnablikinu þá verður ferkara slúður að bíða betri tíma...Það helsta mun þó vera að frétta að skvízan er orðin laus og liðug aftur...mörgum eflaust til mikillar ánægju en það mun þó eflaust vera verðugt áhyggjuefni fyrir einhverja þarna úti
Kveð í bili....flennihress úr sveitinni
P.S. ég lofa að smella meira að segja inn myndum á eftir ...
skyldublogg...Kristín Birta Jónsdóttir
TInna vinkona var svo væn að benda mér á það um daginn að ég bloggaði ekki nema að meðaltali einu sinni í mánuði...og svona þar sem það er kominn nýr mánuður þá ákvað ég að láta verða af því að skella inn færslu ;)Hún verður samt ekki mikið merkilegri en þetta þar sem ég er í vinnunni og er að búa mig undir heimferð..
on another note....kæró kom heim í dag eftir ALLT-OF langa fjarveru í Danmörku...svo ekki búast við neinum stórkostlegum hlutum hérna á næstunni, still luv u all :*
p.s. síminn minn er í góðu glensi og virkaði bara fínt síðast þegar ég vissi...þannig að þið sem finnst ég ekki blogga nóg....just fucking call me!
blogg u l8er....much l8er ;)
kv.Birtis
Helgin oflKristín Birta Jónsdóttir
Það verður að segjast eins og er að helgin var bara alls ekkert viðburðarík. Var að vinna fram eftir degi á laugardeginum og ákvað svo að bjóða konunni og Inga í mat. Á matseðlinum voru ótrúlega góð sveppasúpa og kjúklingabringur...það náðist þó að klúðra eftirréttnum með öllu svo þetta endaði sem 2 rétta máltíð í stað 3 (sem var þó í góðu lagi þar sem allir viðstaddir voru að springa þegar fyrstu 2 réttirnir voru búnir)...Ég sendi svo bara konuna heim að leggja sig og fór sjálf að sulla í hvítvíni með Inga yfir Trainspotting...hressandi það ;) Þegar Jónínan mín var svo búin að fá sinn fegurðarblund kom hún að sækja mig því við ætluðum að kíkja á Pakkhúsið til að sjá strákana í hljómsveitinni hans Viktors spila. Við kíktum samt aðeins á Krúsina fyrst...en þar sem stemningin þar var í meira lagi í súrari kantinum (fólk ælandi niður stiga ofl í þeim dúr) þá fórum við bara beint á Pakkarann.

Reyklaust Pakkhús virðist þó ekkert ætla að vera neinn minni subbustaður en áður og var vægast sagt hressandi að vera svona ótrúlega edrú á þessum stað. Mikið var spáð og spegúlerað og undir endann komumst við Jónína að þeirri niðurstöðu að það bara HLYTI að hafa verið Pólverjakvöld á Pakkhúsinu sem hreinlega hefði gleymst að segja okkur frá.
Við sátum þarna lengi vel og horfðum á t.d. fáklædda konu í hnéháum stígvélum (sem við vorum alveg klárar að hefði nýlega sloppið frá Geira á Goldfinger) dansa af hjartans list við einhvern mann af erlendu bergi brotnu...svo við gleymum nú ekki litla stelpugreyinum frá RVK sem er greinilega svo head over heels yfir ónefndum breta að hún lagði það á sig að koma að djamma á Selfossi (aðra helgina í röð) en það eina sem hún virtist þó hafa uppúr því var hælsæri við það að labba fram og tilbaka framhjá manngreyinu sem augljóslega hafði svo lítinn sem engann áhuga og gaf henni varla auga. Að sjálfsögðu má ekki gleyma gamla fólkinu sem fór að dansa full innilega í pásunni og eftir nokkra velgjulega nebbakossa lét það eftir sér að fara í sleik...note to old people : ef þið ætlið í sleik í Guðs bænum gerið það þá bara heim hjá ykkur! okkur hinum finnst það ekki sexý ....
Þegar fór að líða að lokun ákváðum við þó bara að drífa okkur í Pullarann og svo heim...á sunnudaginn var svo mikið sofið...og svo meira sofið. Blogg u later kids ...love Birtis :*
jeminn eini...Kristín Birta Jónsdóttir
það liggur við að ég sárvorkenni ykkur sem ennþá rembist við að kíkja hérna inn...ætti kannski bara að breyta slóðinni á síðunni í lata.bloggar.is ;)
Annars er bara allt flott að frétta héðan úr sveitinni...en ég er sem sagt komin heim úr góða veðrinu og aftur á Klakann...Vikan er búin að vera viðburðarík enda var ég að byrja í nýrri vinnu og svona voða kózý. Planið er svo að skella inn einhverjum myndum úr ferðinni fljótlega og koma með einhverja smá ferðasögu hérna. En já, engar fréttir eru góðar fréttir...hafiði það bara hugfast þegar þið kíkið hérna inn framvegis...Blogg U L8er guys
nú styttist snarlega í þetta..Kristín Birta Jónsdóttir
jæja þá er maður að fara til Dk bara ...ekki á morgun heldur hinn. Stefnan er að vera komin á Karup 15:35 á föstudaginn og eftir það verður bara endalaus hamingja. Viktorinn ætlar að reyna að rata út á Karup og koma að sækja mig þannig að ég þurfi ekki að taka endalaust margar rútur á leiðinni til hans. Dagskráin í þessari útlandaferð minni er lítil sem engin, enda er planið að eyða sem mestum tíma bara heima í sleik og úti að sóla sig í góða veðrinu ;)En allavega...ætlaði bara að láta heyra í mér. Man aldrei eftir að blogga hérna þegar ég villist á netið svo betur má ef duga skal.

Denmark..Kristín Birta Jónsdóttir
Var að enda við að panta mér flug til Danmerkur...stefnan er að vera mætt á Kastrup uppúr hádegi þann 20. apríl og fljúga þaðan til Karup (afþví að kallinn á heima í rassgati í bala) ;) þannig að eftir 3 vikur verð ég hamingjusamasta litla stelpan í bænum :D Það er ekki laust við að maður fari bara að telja dagana núna...en ég ætla semsagt að vera í viku þannig að þið sem ætlið að sakna mín meðan ég er fjarverandi þurfið ekki að óttast því ég verð komin aftur þann 27.apríl á Klakann.Anyways...gæti bara ekki verið lukkulegri en ég er ...blogg u l8er kids
too tired to care...Kristín Birta Jónsdóttir
vá ég var að vinna í eina 16 tíma í dag...undir þeim kringumstæðum er ekkert sniðugt að fá sér bjór...en engu að síður fannst mér það alveg hrikalega góð hugmynd þegar ég var búin að vinna kl.hálf 3...
Skellti mér sem sagt á Pakkhúsið með "konunni" eftir vinnu og fékk mér einn eða tvo öl.....sem var svo sem alveg hressandi nema fyrir þá staðreynd hvað ég er hrikalega þreytt núna....
blogga meira á morgun þegar ég er hressari....og þegar ég er búin að panta mér flug til að heimsækja Viktorinn minn ;)
pís át kids :*
P.S. ef þú villist hérna inn Viktor......kvittaðu þá ;)
hitt og þettaKristín Birta Jónsdóttir
Dagurinn í gær var voða eðlilegur að flestu leyti...vaknaði og kom Sól í skólann og svona. Rakst svo aðeins og Viktor á msn mér til ómældrar ánægju og skellti mér svo í vinnuna. Þegar heim var komið úr vinnunni tók þó enn betra við þar sem ég fékk símtal þess efnis að bíllykillinn minn væri fundinn! En fyrir ykkur sem ekki vita týndist hann fyrir heilum 16 dögum á sumarbústaðadjammi mér til mikillar gremju og endalausra leiðinda....En sem sagt, þegar Linda fór að taka til í bílnum sínum í gær fannst elsku litli lykillinn minn undir sætinu og slapp ég þar með við að láta setja hann á krók og draga hann úr bústaðnum og niðrí Bíltak :) glimrandi fréttir það og var ég hamingjusöm fyrir ALLAN peninginn.Annars er ekkert að frétta nema bara að ég er að verða vitlaus á þessari útrás vina minna og vandamanna...enda nú að verða 90% líkur á að Jónínan mín sé líka að fara frá mér til Baunalandsins og þykir mér orðið fokið í flest skjól á þessu skítaskeri...spurning um að skella sér bara með stelpunum að vinna....hmmm. En jæja ég ætla að fara að skella mér í vinnuna og vona að ég heyri meira í kallinum mínum í dag en í gær :/ l8ter kids :*
Var ég búin að segja ykkur hvað ég sakna kallsins míns? hehehKristín Birta Jónsdóttir
Jæja þá er það dagur 2 í Viktorsleysi...búin að vera alveg ótrúlega emotional og skemmtileg í dag. Lá í bælinu fram eftir degi og var óttalega lítil og stúrin bara. Korteri áður en ég átti að mæta í vinnuna hringdi ég í Jónínuna mína og heimtaði tissjúið sem hún var búin að lofa mér að hafa við hendina...Geðið varð þó öllu skárra eftir að ég mætti í vinnuna enda ekki mönnum bjóðandi að fara að grenja ofaní kaffibollana þeirra ;) Kallinn hringdi svo fyrir svefninn og ég er mikið hressari á alla kanta bara...planið er líka bara að reyna að hafa nóg að gera þangað til við finnum tíma og peninga til að fara heimsækja kútinn í baunalandið..Vona að morgundagurinn verði eitthvað skárri
Textabrot dagsins er : Nobody said it was easy; it's such a shame for us to part. Nobody said it was easy... no one ever said it would be this hard....